Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á olíu ekki verið lægra í fimm ár

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og hefur nú ekki verið lægra í fimm ár. Verð á Norðursjávarolíunni er nú 44 dollarar fyrir tunnuna og WTI olían er komin undir 46 dollara tunnan.

Í dag er fimmti dagurinn í röð sem olíuverðið lækkar. Samkvæmt frétt á Bloomberg fréttaveitunni sýndu olíutölur frá Bandaríkjunum í gærdag að eftirspurn eftir unnum olíuvörum, eins og bensín og dísel, hefði verið með minnsta móti síðustu vikur.

Frá því að olíuverðið náði sínu hæsta gildi síðasta sumar hefur það lækkað um 70%. OPEC ríkin halda fund nú um miðjan mánuðinn þar sem reiknað er með að þau nái einhverskonar samstöðu um að draga úr framleiðslu sinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×