Nyhedsavisen kemur áfram út eftir sumarfrí 21. júlí 2008 12:30
Samkvæmt fjármálastjóra Nyhedsavisen hefur samkomulag milli eigenda blaðsins náðst og því muni útgáfa blaðsins halda áfram eftir sumarfrí. Mikil ólga hefur umleikið danska fríblaðið Nyhedsavisen að undanförnu. Áður óþekkt skuldabréf í eigu Stoða Invest upp á 4 milljarða íslenskra króna setti strik í reikninginn við endurfjármögnun blaðsins. Morten Lund, aðaleigandi, hefur undanfarið leitað leiða til að fá nýtt fjármagn inn í reksturinn en um 2 milljarða þarf til að hægt sé að halda honum áfram. Uppi voru raddir að ekki hefði náðst samkomulag milli Morten Lund og Stoða Invest hvernig best væri að standa að því. Lars Lindstrom, fjármálastjóri blaðsins, segir í dönskum fjölmiðlum í dag að samkomulag hafi náðst milli eigenda. Stoðir Invest hafi breytt skuldabréfinu til að reyna að fá nýja fjárfesta inn í reksturinn. Ekki er gefið upp hversu stórum hluta skuldabréfsins var breytt eða hvort Stoðir Invest, sem fyrir á 49% í blaðinu, sé nú orðinn meirihlutaeigandi að nýju. Gert er ráð fyrir að Nyhedsavisen skili inn ársreikningi í dag en að öðrum kosti munu eftirlitsstofnanir í Danmörku leysa útgáfuna upp.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira