Montgomerie úr leik á Indlandi 29. febrúar 2008 14:07 Nordic Photos / Getty Images
Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie mátti bíta í það súra epli að komast ekki í gegn um niðurskurðinn á Johnnie Walker mótinu sem fram fer á Indlandi. Sömu sögu er að segja af Ian Poulter sem náði ekki niðurskurði þrátt fyrir að hafa bætt sig á öðrum hringnum. Montgomery lék á fjórum höggum yfir pari í dag og tveimur yfir í gær og er því á meðal neðstu manna á mótinu. Poulter var líka á tveimur yfir í gær en komst ekki í gegn um niðurskurð þrátt fyrir að leika á fjórum undir pari í dag. Heimamaðurinn Shiv Kapur og Ástralinn Uhno Park eru í forystu á mótinu á 10 höggum undir pari. Kapur lék á 65 höggum í dag og Park fylgdi eftir 65 högga hring í gær með því að leika á 66 höggum í dag.
Golf Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Danmörk - Þýskaland | Alfreð ætlar að stöðva heimsmeistarana Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira