Stálkóngurinn selur sumarbústaðinn sinn 29. febrúar 2008 13:49 Lakshmi Mittal vill ekki búa við hliðina á fjölbýlishúsi.
Lakshmi Mittal, indverski stáljöfurinn sem er einn ríkasti maður heims, hefur sett húsið sitt á sölu. Verðmiðinn er um 5,3 milljarðar króna en um er að ræða „sumarbústaðinn" hans í London en hann á annað hús í borginni sem er enn dýrara. Ástæðan fyrir því að Mittal neyðist til að selja kofann er sú að byggingaverktaki hefur fengið leyfi til að byggja fjölbýlishús á næstu lóð og það hugnast Mittal illa. Húsið er á Bishop's Row í London sem í daglegu tali gengur undir nafninu Billionaire's Row. Fjölbýlishúsið er reyndar ekkert slor en þar eiga íbúðirnar að kosta frá einum milljarði og upp í einn og hálfan. Mittal fór fremstur í flokki þegar íbúar götunnar reyndu að koma í veg fyrir að leyfi fengist til þess að breyta einni villunni í fjölbýlishús. Sú barátta bar ekki árangur og því hefur Mittal ákveðið að selja. Þeim sem áhuga hafa á eigninni er bent á að hafa samband við Trevor Abrahmson, fasteignasala hjá Glentree Estates. Hann segist ekki í vafa um að auðvelt verði að selja húsið þar sem Bishop's Row sé vel þekkt staðsetning á meðal ríkustu manna heimsins og stöðutáknin gerist ekki stærri.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira