Blikur á lofti vegna skorts á lánsfjármagni hérlendis 18. nóvember 2008 13:04
Greining Glitnis segir að blikur séu á lofti vegna fyrirsjáanlegs skorts á lánsfjármagni til íslenskra heimila og fyrirtækja. Þetta megi lesa út úr viljayfirlýsingu stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að athygli veki að í viljayfirlýsingunni er kveðið á um mikið aðhald í aðgangi bankakerfisins að skammtímalánum frá Seðlabanka næsta kastið. Hafa skilyrði um tryggingar verið þrengd, sem gengur í gagnstæða átt við það sem seðlabankar víðast hvar í heiminum hafa verið að gera, og fyrirheit eru gefin um að aukning í lánum frá Seðlabanka til bankakerfisins verði lítil sem engin. Ætlunin með þessu virðist vera að ná meiri stjórn en áður á þróun peningamagns. Hinsvegar virðist of mikið peningamagn í umferð ekki vera helsta vandamál hagkerfisins um þessar mundir, heldur eru þvert á móti blikur á lofti með að skortur verði á lánsfjármagni til íslenskra fyrirtækja og heimila. Fjármögnun banka með skuldabréfaútgáfu innanlands virðist ekki vera valkostur næsta kastið og alkunna er að erlend fjármögnun er nú útilokuð. Því er tæpast mögulegt að fjármagna útlán banka á næstunni öðru vísi en með innlánum viðskiptavina og lánafyrirgreiðslu Seðlabankans. „Því þarf að búa þannig um hnútana að innlendur lausafjárskortur grafi ekki um sig og bætist við þau miklu vandamál sem hagkerfið glímir við þessa dagana," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira