Framkvæmdarstjóri Keops ósáttur með Stones Invest 19. ágúst 2008 10:24 Höfuðstöðvar Keops í Danmörku.
Preben Thomsen, framkvæmdarstjóri Keops Development, gagnrýnir eiganda félagsins Stones Invest harðlega fyrir að taka 22 milljónir danskra króna út úr fyrirtækinu og nota í önnur verkefni. Keops sem hefur átt í fjárhagserfiðleikum var áður í eigu íslenska fjárfestingafélagsins Landic Property en félagið seldi Keops til Stones í vor. Framkvæmdarstjórinn kemur úr sumarleyfi vegna málsins og er ekki sáttur. „Ég get alveg lifað með því að stytta sumarfrí mitt. En ég get ekki sætt mig við þær ákvarðanir sem hafa verið teknar án minnar vitundar," sagði Preben við Ritzau fréttaveituna í Danmörku. Landic Property hefur átt í nokkrum deilum við Stones Invest undanfarið vegna viðskiptanna með Keops og sendi síðarnefnda félagið frá sér fréttatilkynningu nýlega þar sem kemur fram að kaupunum hafi verið rift vegna vanefnda Landic Property. Stones Invest fer fram á 4 milljarða íslenskra króna í skaðabætur vegna hnekkja sem viðskiptavild félagsins hafi hlotið vegna viðskiptanna. Þessu hafnar Landic Property og segir Stones ekki geta rift samningnum einhliða. Preben segir að virðisaukaskattur upp á um 22 milljónir danskra króna hafi verið greiddur til Stones Invest en ekki Keops sem átt hefur í fjárhagserfiðleikum og ekki getað staðið við skuldbindingar tengdar byggingu dómshúss á Sjálandi.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira