Olíutunnan í tvöhundruð dollara á næstu árum að mati sérfræðinga 8. ágúst 2008 14:32 Hækkunin gæti komið illa við pyngju bíleigenda.
Alvarlegur olíuskortur er handan við hornið og gæti tunnan farið yfir 200 dollara á tunnu að mati sérfræðihópsins Chatham house. Í nýrri skýrslu frá hópnum kemur fram að þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að framleiðsla olíu aukist gæti skorturinn farið að gera vart við sig á næstu fimm til tíu árum. Í skýrslunni segir að næg olía sé enn til, en fyrirtæki og ríkisstjórnir fjárfesti ekki nóg í henni til að tryggja áframhaldandi framleiðslu. Það eina sem gæti komið í veg fyrir olíukreppuna sé algjört hrun á eftirspurn. „Eini möguleikinn til að komast hjá þessum skorti virðist vera ef að meiriháttar efnahagslægð dregur úr eftirspurn - og það gæti jafnvel bara seinkað vandamálinu," hefur fréttastofa BBC eftir prófessor Paul Stevens höfundi skýrslunnar í The Coming Oil Crunch. Hann varar við því að það dragi úr olíuframleiðslu, þar sem framleiðslufyrirtækin vilji fremur skila hluthöfum sínum arði en að endurfjárfesta honum í aukinni framleiðslu. Hann segir einnig að aukin "auðlinda þjóðernishyggja" þýði að ríkisstjórnir hindri vöxt opinberra olíufélaga sinna með því að meina erlendum olíufyrirtækjum að taka þátt í uppbyggingu þeirra. Stevens segir að stjórnvöld þurfi að grípa í taumana vilji þeir afstýra vandanum, auka framleiðslu og lækka olíuverð. Um leið þurfi að styðja olíuútflytjendur og leyfa samtökum olíframleiðsluríkja, Opec, að leggja til í neyðarbirgðir alþjóða orkumálastofnunarinnar.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira