Markaðir í Asíu og Evrópu hafa opnað á jákvæðum nótum í morgun eftir að ljóst var að Saudi-arabar ætla að auka verulega við olíuframleiðslu sína.
Sem dæmi um hækkanir má nefna að Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði um 2,7% í morgun og er það mesta hækkun þeirrar vísitölu á undanförnum fjórum mánuðum.
FTSE-vísitalan í London var á uppleið í morgun hefur hefur nú hækkað um 0,2% frá opnuninni.
Á móti hefur olíuverð farið lækkandi í morgun og var verðið komið niður í rúma 134 dollara á tunnuna.