Danskur kjólakaupmaður í klónum á CIA 16. júní 2008 10:23
Christa Möllgaard Hansen er kjólakaupmaður í Maribo í Danmörku. Hún er nú komin á lista bandarísku leyniþjónustunnar CIA yfir fólk sem grunað er um að styðja við bakið á hryðjuverkamönnum. Christa pantaði sér sex kjóla frá fataverksmiðju í Pakistan og sendi verksmiðjunni 205 dollara sem greiðslu fyrir kjólanna. Dollararnir náðu þó aldrei til viðtakenda því CIA greip inn í peningasendinguna og gerði dollarana upptæka. Samkvæmt frétt í Berlinske Tidende mun líða ár og dagur þar til Christa sér kjóla sína, hvað þá dollarana. Christa rekur kjólaverslunina Christabellas í Maribo. Hún notaði netbanka sinn til að millifæra greiðsluna til Pakistan í vor. Síðan leið og beið. "Eftir tíu daga fékk ég upphringingu frá bankamanni mínum hjá Nordea," segir Christa. "Hann tjáði mér að höfuðstöðvar bankans í Kaupmannahöfn hefðu fengið kröfu frá bandarískum stjórnvöldum um frekari upplýsingar um viðtakenda greiðslunnar í Pakistan." Christa segir að hún sé steinhissa á öllu þessu brambolti vegna lítillar sendingar á kjólum til sín. Hún hafi notað netbanka sinn til kaupa á kjólum í Taílandi, Bandaríkjunum og Hong Kong og aldrei lent í vandræðum. Nordea varð við beiðni Bandaríkjamanna og sendi þeim allar þær upplýsingar sem bankinn hafði um viðtakenda dollarana í Pakistan. Síðan þá hefur ekkert heyrst í Bandaríkjamönnunum.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira