Viðskipti erlent

Borgar 109% skatt í Danmörku og fær því ekki breytt

Daninn Peter Holm er rukkaður um 109% skatt af þarlendum skattyfirvöldum og fær því ekki breytt. Af hverjum 100 krónum sem hann vinnur sér inn krefst skatturinn 109 króna.

Skattamartröð Holms hófst er hann fann fjárfesti sem vildi setja peninga í rekstur hans. Þeir ákváðu í sameiningu að stofna nýtt félag með jöfnum hlut. Holm setti því rekstur sinn inn í hið nýja félag en hélt áfram að vinna fyrir það.

Þetta þýðir í raun að hann er tvískattaður um ýmsa hluti eins og til dæmis virðisaukaskatt, bílfríðindi sín og fleira. Og það þýðir að hann þarf að borga 109 krónur af hverjum 100 krónum sem hann vinnur sér inn.

Lögmaður Holms hefur ítrekað reynt að fá skattayfirvöldin dönsku til að sjá hve vitlaust þetta er en án árangurs. Er málið nú komið inn á borð hjá danska ríkisskattstjóranum.

Á meðan mál Holms veltur til og frá í kerfinu þarf hann að taka lán til að geta staðið í skilum við skattinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×