Svar til riddara niðurrifsins 11. desember 2008 06:15 Svo virðist - eftir allt sem á undan er gengið - að Hallgrímur Helgason rithöfundur vilji halda áfram að rífa niður og eyðileggja. Í Fréttablaðinu 7. desember slær hann sig til riddara niðurrifsins og þykist vita allt betur en aðrir. Betur en Sjálfstæðisflokkurinn. Betur en Samfylkingin. Úthrópar þá sem eru að vinna þjóðinni allt til heilla. Og reynir að kynda undir pólitískri hatursumræðu á Íslandi ofan á allt annað. Ég er orðinn svolítið leiður á Hallgrími. Aftur og aftur gengur hann of langt. Hann er með Geir H. Haarde á heilanum. Hann uppnefnir forsætisráðherra, kallar hann skjálfhentan, þreyttan og pirraðan, án leiðtogahæfileika sem birtist í hlutverki smástráks með aulabrandara. Talar um ákvarðanafælni hans meðan Geir tekur ákvarðanir á færibandi hvern klukkutíma hvers einasta dags af stjórnvisku og festu fyrir Ísland. Af mikilli reisn. Taugaveiklunarlaust. Í þeirri röð sem er þjóðinni til mestrar gæfu á þessari stundu. Það er mikill vandi að stjórna landi. Ekki síst þegar vandamálin eru á færibandi. Hvað á Hallgrímur eiginlega við? Er hann að tala um sjálfan sig? Það er fráleitt að snúa aðdáun í fyrirlitningu með þeim hætti sem Hallgrímur gerir og úthrópa máttarstólpa þjóðfélagsins - Sjálfstæðisflokkinn. Sem Hallgrímur virðist þó innst inni bera mikla virðingu fyrir. Og allir vita að er eini flokkurinn sem getur tryggt þjóðinni tekjur til framtíðar, ásamt samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn Íslands. En svo ræðst Hallgrímur á sinn eigin flokk sem gerir sitt besta líka - Samfylkinguna - og tekur undir ódýrt lýðskrum Vinstri grænna sem eru að græða á neyð þjóðarinnar. Það er lítilmannlegt og hæfir honum ekki. Það er sáraauðvelt að ala á fordómum um þá sem eru með allar byrðar þjóðarinnar á bakinu. Gerir hann sér grein fyrir því hve mikið mæðir á forsætisráðherra Íslands 24 tíma á sólarhring? Heldur hann að það sé eitthvert grín sem Geir H. Haarde er að takast á við á hverjum einasta degi fyrir þjóðina? Með slíka hatursumræðu gegn sér ofan á allt annað? „Ísland er brennandi blokk" segir Hallgrímur. „Íbúarnir [-] góna örvæntingarfullir út úr reykjarkófinu." Voða sniðugt. Heldur Hallgrímur að ástand Íslands sé til að hafa í flimtingum? Aðstæður þjóðarinnar séu eitthvert grín? Íslandi blæðir og hann leyfir sér að gera lítið, bæði úr þjóðinni og þeim sem eru að bjarga henni af mestu heilindum og alvöru út úr verstu krísu lýðveldistímans. Það þarf að gæta einhvers hófs í málflutningi manna. Og vera eitthvert vit í því sem þeir eru að segja. Sem er lögmálið um skaðsemi öfga sem geta búið í okkur öllum. Nú síðast í Hallgrími. Því þetta er makalaust lýðskrum. Rakalaus óvild. Sem gerir engum greiða. Ekki Hallgrími. Ekki Samfylkingunni. Það er nóg komið af ofsóknarkenndri og hatursfullri orðræðu Hallgríms. Hann er hvattur til að líta í eigin barm. Hann skaðar Samfylkinguna og sjálfan sig. Hann þarf að hætta þessu móðursýkislega niðurrifi og fara að bygga upp með okkur hinum. Hallgrímur virðist ekki skilja vanda stjórnmálanna. Vanda raunveruleikans. Hann heldur að gaspursamar patentlausnir í frasakenndum stíl færi okkur úr grafalvarlegum vanda heillar þjóðar inn í framtíðina. En það er alrangt. Það er mikill vandi að stjórna landi. Ekki síst þegar virðing fyrir öllum borgurum þess er höfð að leiðarljósi. Þá er þörf á visku Salómons. Þetta skilur formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra Íslands - Geir H. Haarde. Þetta skilur varaformaður Sjálfstæðisflokksins - Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þetta skilur Sjálfstæðisflokkurinn. Þetta skilur Samfylkingin og forysta hennar. En það virðist ofvaxið skilningi Hallgríms Helgasonar. Höfundur er ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal Skoðun Skoðun Skoðun Viltu koma í ferðalag? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson skrifar Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing SFS? Friðleifur Egill Guðmundsson skrifar Skoðun Jón Gnarr fyrir dýraverndina Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Mannréttindastofnun verður að veruleika Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Samstarf við landsbyggðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Lausnin út í mýri? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Forseti sem gefur kjark og von Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson skrifar Skoðun Offita er langvinnur sjúkdómur Hópur fólks í stjórn Félags fagfólks um offitu skrifar Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson skrifar Skoðun Mynda þurfti ríkisstjórn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er svarið Nótt Thorberg skrifar Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson skrifar Skoðun Lokað á börn í vanda Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson skrifar Skoðun Fjarheilbrigðisþjónusta Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Forsetaframbjóðandi með sömu tölu og Jesú Gunnar Karl Halldórsson skrifar Skoðun Einfaldara fyrirkomulag tilvísana Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Málið á að endurspegla fólkið í landinu Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Hreyfing og tengsl Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir skrifar Skoðun Eru byssur meira fullorðins? Oddný G. Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar
Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar