Airbus fagnar samningi við Bandaríkin 2. mars 2008 14:31 Eldsneytisflugvél KC-135 býr sig undir að gefa eldsneyti á flugi. MYND/AFP
EADS sem framleiðir Airbus farþegaþoturnar í Evrópu fagnar því að hafa gert samning við Bandaríkjastjórn um smíði eldsneytisflugvéla fyrir bandaríska herinn. Samningurinn er áfall fyrir Boeing verksmiðjurnar í Bandaríkjunum. Samningurinn kemur Airbus ákaflega vel eftir afturkipp sem varð til endurskipulagningar reksturs fyrirtækisins. EADS og samstarfsfyrirtæki þess í Bandaríkjunum, Northrop Grumman, sömdu við yfirvöld um einn stærsta samning sem bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur gert í áratugi. Hann hljóðar upp á framleiðslu 179 eldsneytisflugvéla sem geta gefið flugvélum eldsneyti á flugi. Samningurinn hljóðar upp á 2.600 milljarða króna. „Þetta er gífurlegur sigur á bandarískum markaði," sagði Louis Gallois framkvæmdastjóri EADS í gær á frönsku útvarpsstöðinni France-Info; „Að sigra Boeing á ameríska markaðnum, - við vorum mjög stoltir." Samningurinn eykur einnig möguleika á því að fleiri samningar verði gerðir við fyrirtækið. EADS-Northrop Grumman varð fyrir vali bandarískra stjórnvalda að hluta til vegna þess að eldsneytisflugvélin sem þeir lögðu til KC-30 tekur meira eldsneyti, meiri fragt og fleiri farþega samvkæmt heimildum Duncan McNabb herforingja í flughernum. Búkur vélarinnar er byggður á Airbus A330 farþegavélinni. Endanleg samsetning hennar fer fram í Mobile í Alabama samkvæmt EADS. Þar verða einnig settar saman venjulegar A330 farþegaflugvélar. „Við sköpum fjölda starfa í Bandaríkjunum, en við sköpum líka störf í Evrópu," sagði Gallois en gaf ekki upp fjölda.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira