Bandaríski seðlabankinn til bjargar AIG Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. september 2008 08:23
Bandaríski seðlabankinn kom tryggingafélaginu AIG til bjargar á elleftu stundu með lánveitingu sem ákvörðun var tekin um í gærkvöldi. Lánið nemur tæplega 8.000 milljörðum íslenskra króna og var síðasta hálmstrá tryggingarisans AIG, að öðrum kosti hefði beiðni um greiðslustöðvun komið til. Með þessari neyðarráðstöfun eignast Bandaríkjastjórn 80 prósenta hlut í fyrirtækinu sem telst í hópi 20 stærstu fyrirtækja heims en starfsemi þess er rekin í rúmlega eitt hundrað löndum. Sérfræðingar segja lánið hafa bjargað AIG frá brunaútsölu en þó sé líklegast að fyrirtækið verði brotið upp í smærri einingar og hlutar þess seldir, þó undir þeim formerkjum að stjórn seðlabankans verður ávallt heimilt að beita neitunarvaldi til að stöðva sölu sem hún telur óæskilega. Á þessu ári hafa hlutabréf í AIG lækkað um 94 prósent og höfðu allir bankar lokað dyrum sínum fyrir því þegar seðlabankinn ákvað að stíga fram til bjargar. Allar eigur AIG og dótturfyrirtækja þess munu standa til tryggingar láninu.
Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira