Gjaldeyrisforði SÍ hverfur á næsta ári að öðru óbreyttu 12. nóvember 2008 11:44
Gjaldeyrisforði Seðlabankans ætti að duga til innflutnings vöru og þjónustu fram yfir fyrsta fjórðung næsta árs að öðru óbreyttu, jafnvel þótt lítið sem ekkert innflæði komi á móti frá útfluttum vörum og þjónustu. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu en þar kemur fram að sökum þess að gjaldeyrismál landsins eru í miklum lamasessi sé gjaldeyrisforði SÍ nú notaður til að fjármagna innflutning til landsins. Og að til þessa dugi forðinn aðeins fram í apríl á næsta ári. „Ríkisstjórnin vinnur nú að því að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans með stórfelldum lántökum svo bankinn hafi öflugt vopnabúr þegar krónunni verður fleytt að nýju. Á meðan það tefst, og gjaldeyrismál landsins eru í jafnmiklum lamasessi og nú er raunin, gengur smátt og smátt á gjaldeyrisforðann sem fyrir er," segir í Morgunkorninu. „Mikil vanhöld virðast á því að útflutningstekjur skili sér á innlendan gjaldeyrismarkað, og hefur því komið til kasta Seðlabanka að leggja til gjaldeyri til innflutnings úr gjaldeyrisforðanum." Brýnt er hins vegar að heimtur gjaldeyristekna inn í hagkerfið verði bættar sem allra fyrst, því afar varasamt er að stóla lengi á gjaldeyrisforðann til fjármögnunar innflutnings. Sú töf sem orðin er á afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á aðstoð til Íslands og þeim lánum frá öðrum sem í kjölfarið fylgja hefur því margháttuð slæm áhrif. Í fyrsta lagi tefur hún fyrir að lag komist á gjaldeyrismarkað og útflutningstekjur skili sér inn í hagkerfið þar sem margir útflytjendur virðast halda að sér höndum með flutning gjaldeyristekna inn í kerfið í þeirri miklu óvissu sem nú ríkir. Í öðru lagi gengur hægt og sígandi á gjaldeyrisforðann, sem dregur úr slagkrafti Seðlabankans til að koma fótum undir krónuna þegar henni verður fleytt.
Mest lesið Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira