Rekstur Nokia undir væntingum 17. apríl 2008 16:52 Nokia. Mynd/ AFP.
Uppgjör Nokia sem birt var í morgun var aðeins undir spám markaðsaðila einkum vegna einskiptiskostnaðar tengdum eftirlaunaskuldbindingum og lokunar á verksmiðjum. Velta félagsins á fjórðungnum nam 12,6 milljörðum evra samanborið við 12,7 milljarða meðalspá greiningaraðila. Þetta kemur fram í Hálf-fimm fréttum Kaupþings.Bréf í félaginu hafa lækkað um 27% frá ársbyrjun „Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 1,5 milljörðum evra samanborið við meðalspá greiningaraðila um 1,6 milljarða. Ef hins vegar leiðrétt er fyrir einskiptiskostnaði vegna eftirlaunaskuldbindinga og flutnings á verksmiðju frá Þýskalandi til Rúmeníu þá var EBIT-hagnaður félagsins yfir væntingum eða um 1,984 millörðum evra samanborið við meðalspá greiningaraðila um 1,938 milljarða evra. Bréf félagsins lækkuðu um 10% í finnsku kauphöllinni í dag og nemur lækkunin um 27% frá ársbyrjun. Nokia er stærsta fyrirtæki Finnlands og lækkaði markaðsverðmæti félagsins um 960 milljarða króna í dag," segir Greining Kaupþings. Markaðshlutdeild undir væntingum Markaðshlutdeild Nokia á fyrsta ársfjórðungi mældist lægri en markaðurinn hafði væntingar til, að sögn Greiningar Kaupþings. Þar kemur fram að félagið mælist með 39% markaðshlutdeild nú samanborið við væntingar markaðarins um 40% markaðshlutdeild á heimsvísu. Hins vegar ef litið sé til sama tíma í fyrra þá hafi markaðshlutdeild Nokia aukist umtalsvert en í fyrra hafi hún verið um 36%. Þessari markaðshlutdeild hafi félagið einkum náð með aukinni sölu á ódýrari farsímum en meðaltekjur af seldu símtæki lækkuðu verulega eða úr 83 evrum á símtæki á fjórða ársfjórðungi niður í 79 evrur á símtæki. Hluti skýringarinnar sé veiking dollars gagnvart evru
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira