Viðskipti innlent

Ris fall FL Group

Stefnt er að því að taka FL Group af skráðum markaði á næstunni, samkvæmt heimildum Markaðarins. Hefur það verið rætt í hópi stærstu hluthafa en ekki formlega í stjórn félagsins. Ekki er ljóst hvað verður gert í framhaldinu en til skoðunar er að skipta félaginu upp og hætta rekstri þess. Menn eru búnir að missa þolinmæðina. Of mikill tími hefur farið í að huga að FL Group hjá mönnum sem eru mjög uppteknir á öðrum vígstöðvum nú þegar markaðir nánast hrynja.

Um síðustu áramót var verðmæti verðbréfasafns FL Group metið á um 219 milljarða króna í ársreikningi. Fasteignir, Tryggingamiðstöðin og eignarhlutur í Glitni munu vera eftirsóknarverðar eignir í augum stærstu eigenda. Undan­farið hafa erlendar eignir markvisst verið seldar til að minnka markaðsáhættu félagsins. Áfram verður haldið á þeirri braut enda hafa miklir fjármunir tapast á erlendum fjárfestingum. Jón Sigurðsson forstjóri upplýsti á aðalfundi að tapið á flugrekstrarfélaginu AMR, Finnair og Commerzbank á síðasta ári næmi 38 milljörðum króna.

Margir öruggir með sig

Ljóst er að mettap FL Group á síðasta ári, um 67 milljarðar króna, er ekki eingöngu vegna vitlausra ákvarðana stjórnenda félagsins. Niðursveifla á alþjóðlegum mörkuðum hefur vissulega haft sitt að segja. Menn voru líka orðnir öruggir með sig eftir velgengni síðustu ára og fóru ekki nógu varlega. Fyrst bar á örvæntingu þegar ekkert gekk að breyta áherslum í AMR þrátt fyrir að FL Group væri stærsti einstaki hluthafinn. Hannes Smárason birtist á bandarísku viðskiptafréttastöðinni CNBC og útskýrði hvað þyrfti að gera. Og margir tóku undir röksemdir hans. En lítið gekk. Gengi AMR lækkaði og FL Group tapaði milljörðum.

Þessi þróun hélt áfram og hafði áhrif á gengi félagsins í Kauphöll Íslands og á önnur fjármála- og fjárfestingarfélög. Enginn var stikkfrír í þessari þróun. Menn höfðu spilað djarft. Bankar höfðu lært það í fyrri niðursveiflum að vakta vel hvað væri á bak við veð fyrir lán í hlutabréfum. Velgengni síðustu ára hafði hvatt menn til að tefla djarft, veðsetja hluta af verðbréfasafninu og kaupa meira. Lækkun hlutabréfa varð til þess að margir lentu í vandræðum. Þau vandræði kristölluðust þegar Gnúpur, fjárfestingarfélag Kristins Björnssonar, Magnúsar Kristinssonar og Þórðar Más Jóhannessonar, lenti í vandræðum. Einn stærsti hluthafi FL Group var að komast í þrot. Eigið fé félagsins var nánast uppurið og Landsbankinn krafðist aðgerða. Svipaða sögu var að segja um Materia Invest þeirra Þorsteins M. Jónssonar, Magnúsar Ármanns og Kevins Stanford.

Vandræðin verða sýnileg

Þannig kristölluðust vandræðin á íslenska verðbréfamarkaðnum í erfiðleikum hjá hluthöfum FL Group. Þar var hægt að sjá birtingar­mynd erfiðleikanna. Þó vildu allir meina að uppstokkun í hluthafahópnum í desember á síðasta ári hefði verið fyrsta skrefið fram á við. Úr vörn í sókn. Félagið var eflt með hlutafjáraukningu þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, lék aðal­hlutverkið. Hann hélt í björgunar­leiðangur. Útboðsgengið var keyrt niður úr 19 í 14,7 sem mörgum smærri hluthöfum þótti alltof lágt. Kaupþing tók ekki annað í mál enda á félagið hagsmuna að gæta sem lánardrottinn Baugs.

Pálmi Haraldsson, sem hafði selt allt sitt í FL á genginu 29,5, tók þátt í hlutafjáraukningunni og keypti á genginu 14,7 og lægra. Hann hirti hluti þeirra sem voru í vandræðum. Fleiri tóku þátt og þá átti að verðlauna í febrúar með öðru hlutafjárútboði. Þá átti Baugur að falla frá forkaupsrétti og björgunarsveitin átti að fá að kaupa aftur á sama gengi og í desember. Menn sáu ekki lengra en nokkra daga fram í tímann. Gengi FL í byrjun febrúar var komið niður í 10. Hætt var við hlutafjáraukninguna.

Gríðarlegt tap

Enn sér ekki fyrir endann á vandræðum FL Group. Markaðsverðmæti félagsins hefur hrunið. Í júlí í fyrra var verðmæti FL Group tæpir 300 milljarðar króna. Um miðjan dag í gær var það um 66 milljarðar króna. Það er lækkun um 234 milljarða króna á átta mánuðum. Það munar um minna.

Það er ekki einfalt mál að afskrá félag eins og Páll Harðarson, aðstoðarforstjóri Kauphallarinnar, útskýrir hér til hliðar. Ljóst er að gæta verður að hag minni hluthafa þegar þeir stóru taka svo afdrifaríkar ákvarðanir. Hvaða leið verður farin er óljóst. Hvort menn hætti við er líka óljóst. Hins vegar er ljóst að þolinmæði stærstu eigenda gagnvart FL Group er svo til á þrotum. Menn þurfa nú að beina kröftum sínum að öðrum og ekki síður mikil­vægum hlutum. Hræringar á öllum mörkuðum krefjast þess.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×