Kynþáttafordómar verða ekki liðnir í Formúlu 1 13. febrúar 2008 14:00 Nordic Photos / Getty Images
Max Mosley, yfirmaður í Formúlu 1, segir að hart verði brugðist við ef kynþáttafordómar gera vart við sig á ný í kring um íþróttina. Lewis Hamilton, ökumaður McLaren, varð fyrir aðkasti á Spáni um daginn. "Við munum gera hvað sem við getum til að eyða út svona uppákomum. Ef hér er aðeins um að ræða lítinn hóp fólks, getum við brugðist við strax og upprætt þetta," sagði Mosley. Hamilton varð fyrir kynþáttaníð þar sem hann var við æfingar í Barcelona um daginn þar sem hann var m.a. kallaður "svartur skítur" að sögn fjölmiðla í Katalóníu. Hamilton er nú aftur kominn til æfinga á svæðinu en í þetta sinn fékk hann að vera óáreittur og lét vel af veru sinni. Mosley hefur hótað því að spænska kappakstrinum verði einfaldlega kippt út af dagskránni ef svona lagað kæmi upp aftur. Það sama eigi við um öll önnur lönd. "Það hefði verið of mikið að bregðast svo hart við strax og við munum gefa þeim tækifæri til að leysa málið. En það er mikilvægt að senda strax út þau skilaboð að kynþáttaníð verði ekki liðin," sagði Mosley.
Formúla Mest lesið Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti Svaf yfir sig og missti af rútunni Handbolti „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Handbolti Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Körfubolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira