Fasteignamarkaðurinn enn í góðum gír 8. maí 2007 17:10
Áfram er góður gangur á fasteignamarkaði miðað við nýbirtar tölur frá Fasteignamati ríkisins um veltu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum Kaupþings í dag. Í apríl voru þinglýstir 803 kaupsamningar sem er um 12% færri kaupsamningar en í mars. Það má rekja má til þess að viðskiptadagar í apríl voru færri vegna páskanna. Borið saman við sama mánuð í fyrra, þar sem páskarnir í fyrra voru einnig í apríl, þá fjölgar þinglýstum kaupsamningum um 30%. Heildarvelta á fasteignamarkaði nam 24,3 milljörðum króna og var meðalupphæð kaupsamninga rúmlega 30 milljónir. Þá segir að miðað við ofangreindar tölur virðist ekkert benda til þess að kólnun sé framundan á fasteignamarkaðnum. Rekja má aukin umsvif á fasteignamarkaði til auðveldara aðgengis að lánsfé og mikillar bjartsýni íslenskra neytenda. Þá má jafnframt ætla að aukin ásókn íslenskra heimila í erlenda fjármögnun hafi átt sinn þátt í því að ýta undir frekari eftirspurn á fasteignamarkaði en gengisbundin lán íslenskra heimila námu í lok mars 103 milljörðum króna eða sem nemur um 14% af heildarskuldum heimila til bankakerfisins.
Viðskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira