Gengi hlutabréfa féll í Kína 22. júní 2007 09:05 Gengið út úr kauphöllinni í Sjanghæ í Kína. Mynd/AFP
Gengi kínversku SCI-vísitölunnar féll um 3,4 prósent í kauphöllinni Sjanghæ í Kína í dag eftir að tvö stór ríkisfyrirtæki þar í landi tilkynntu að þau ætli að selja hlutabréf í næstu viku. Fjárfestar óttast að gjörningurinn lækki verðmæti hlutabréfa. Gengi SCI-vísitölunnar lækkaði um 137,7 punkta og stendur nú í 4.099,377 stigum. Mikil eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum í Kína og hafa jafnt háskólastúdentar sem eldri borgarar kosið að verja sparifé sínu fremur í kaup á hlutabréfum en til annars. Gengi hlutabréfa í Kína hefur staðið í methæðum undanfarna mánuði vegna þessa en gengi þeirra hefur tvöfaldast frá áramótum. Varað hefur verið við bólumyndun á kínverska hlutabréfamarkaðnum, sem geti sprungið með alvarlegum afleiðingum fyrir fjármálamarkaði víða um heim. Stjórnvöld hafa því leitað leiða til að kæla markaðinn og meðal annars hækkað stimpilgjöld. Breska ríkisútvarpið hefur eftir greinendum að lækkunin nú muni vara til skamms tíma og muni það hafa góð áhrif á hlutabréfamarkaðinn.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira