Formúla 1

Örlög McLaren ráðast ekki fyrr en í febrúar

NordicPhotos/GettyImages

Lewis Hamilton og félagar hjá McLaren í Formúlu 1 fá ekki að vita um niðurstöðuna í nýjasta njósnamálinu fyrr en í febrúar. Þetta varð óvænt niðurstaða fundar í dag þar sem reiknað var með að niðurstaða kæmist í málið.

Forráðamenn McLaren mættu fyrir rétt í dag þar sem niðurstöðu var að vænta úr njósnamálinu fræga en þar var þeim tilkynnt að þeir þyrftu að bíða fram í febrúar því frekari rannsókn ætti eftir að fara fram í málinu.

McLaren liðið var sektað um 100 milljónir dollara og dæmt úr leik í keppni bílasmiða á síðustu leiktíð eftir að ítarlegar skýrslur um bíla keppninauta þeirra hjá Ferrari fundust í herbúðum liðsins.

Í dag var svo að vænta niðurstöðu úr rannsóknum á 2008 bíl McLaren þar sem ganga átti úr skugga um að bíllinn væri ekki hannaður eftir hugmyndum úr stolnum gögnum ítalska liðsins.

Ef svo hefði verið, kom til greina að McLaren hefði hlotið frekari refsingar og stigafrádrátt á næsta keppnistímabili. Þessi seinkun þýðir hinsvegar að forráðamenn McLaren hafa mun minni tíma til undirbúnings fyrir næsta tímabil en áætlað var, en hafa líklega litla samúð fólks þó svo yrði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×