Ekkert gert nema Aron Pálmi kvarti formlega Óli Tynes skrifar 29. nóvember 2007 14:46 Aron Pálmi í útgáfuteiti bókar sinnar um fangelsisárin í Bandaríkjunum. Mynd/ Arnþór.
Bandaríska sendiráðið segir að engin formleg kvörtun hafi borist frá Aroni Pálma Ágústssyni yfir framkomu starfsmanns sendiráðsins við sig. Af sendiráðsins hálfu verði ekkert gert nema slík kvörtun berist. Aron Pálmi sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að Arnar B. Sigurðsson, starfsmaður Bandaríska sendiráðsins hefði komið að máli við sig í miðbæ Reykjavíkur. Hann hafi rétt sér nafnspjald sitt og sagt sér að hann hefði það hlutverk að fylgjast með ferðum hans. Aron Pálmi sagði ennfremur að Arnar B. Sigurðsson hefði hótað því að ef hann léti sjá sig í sendiráðinu, myndi hann, Arnar, láta handtaka hann. Upplýsingafulltrúi bandaríska sendiráðsins fullyrti í gær að sendiráðið hefði ekkert eftirlit með Aroni Pálma, né öðrum einstaklingum á Íslandi. Aron Pálmi sagði að hann hefði kvartað yfir þessu símleiðis, bæði við bandaríska sendiráðið og íslenska utanríkisráðuneytið. Vísir hafði samband við sendiráðið í dag og spurði hvert yrði framhald þessa máls. Robert C. Dominic varð fyrir svörum. Hann sagði að engin rannsókn hefði farið fram á þessu í sendiráðinu. Engin formleg kvörtun hefði borist frá Aroni Pálma, og meðan svo væri yrði ekkert framhald.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira