Tiffany og eBay í dómsmáli um falsaðar vörur 14. nóvember 2007 15:47
Tiffany og eBay eiga í dómsmáli sem hófst í bandarískum réttarsal í dag. Niðurstaða málsins gæti verið fordæmisgefandi um hvernig leysa eigi lögfræðilega álitaefni þegar falsaðar vörur eru boðnar til sölu á netinu. Tiffany hóf málsókn gegn eBay árið 2004 og sakaði uppboðsvefinn um að setja kíkinn fyrir blinda augað þegar kom að sölu á fölsuðum vörum á vefnum. Á árunum 2003 til 2004 voru tveir af starfsmönnum Tiffany fengnir til að kaupa Tiffany silfurmuni á eBay. Aðeins 5% af þeim munum sem starfsmennirnir keyptu voru raunverulegar Tiffany vörur. Hitt voru falsanir eða eftirlíkingar. Í kjölfarið hætti eBay við uppboð á um 19.000 munum. Við upphaf réttarhaldanna í dag sagði lögmaður eBay að uppboðsvefurinn eyddi sem svarar um 600 miljónum kr. á ári til að koma í veg fyrir að falsaðar vörur væru settar í sölu á vefnum. Og það væri hlutverk Tiffany, ekki eBay, að verja höfundarrétt sitt. Lögmaður Tiffany aftur á móti sagði að eBay hefði neitað að taka ábyrgð á sölu á fölsuðum vörum á vef sínum og því væri fyrirtækið skaðabótaskylt.
Mest lesið Gagnrýna steinefni fyrir börn og vilja að framleiðendur vandi sig Neytendur Getur verið vandræðalegt að byrja allt í einu að syngja í Krónunni Atvinnulíf Sjá rukkun og „sirka tilboð“ gjörólíku ljósi Neytendur Mjög leiðinlegt mál en tilboðið hafi aldrei verið samþykkt Neytendur Rafmyntir hrynja í verði eftir tollahótanir Viðskipti erlent Ekkja í Hafnarfirði missti af íbúð þrátt fyrir samþykki Neytendur „Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“ Atvinnulíf Vill að nýtt flugfélag taki á loft næsta sumar Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Ferðamaður sem sá Þingvelli í myrkri fær endurgreitt að hluta Neytendur Fleiri fréttir Rafmyntir hrynja í verði eftir tollahótanir Herða hreðjatakið á birgðakeðjum Vesturlanda Virði gulls í methæðum Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Strava stefnir Garmin AMD upp um fjórðung eftir risasamning við OpenAI Boeing sagt byrjað að þróa arftaka 737 max-þotunnar Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira