Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Bretlandi 3. október 2007 09:29 Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, ásamt Gordon Brown, forsætisráðherra landsins. Reiknað er með að King haldi stýrivöxtum óbreyttum á morgun. Mynd/AFP
Samtök verslunar í Bretlandi segir nauðsynlegt að Englandsbanki lækki stýrivexti en það muni auka bjartsýni neytenda á horfur í efnahagsmálum. Vaxtaákvörðunarfundur Englandsbanka er á morgun en reiknað er með því að bankastjórnin haldi stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósentum að sinni. Seðlabankinn hefur verið undir miklum þrýstingi á að lækka stýrivexti frá á vordögum til að blása lífi í smásöluverslun. Bankinn hefur hins vegar stefnt að því að draga úr verðbólgu, sem fór yfir þriggja prósenta markið í vor og hafði ekki verið hærri í áratug. Verðbólga í Bretlandi hefur hins vegar legið undir tveimur prósentum síðastliðna tvo mánuði og er gert ráð fyrir að hún hreyfist ekki mikið upp á við á næstunni, að sögn fréttaveitunnar Thomson Financials. Meirihluti fjármálaskýrenda telur líkur á að seðlabankinn ákveði fremur að halda stýrivöxtum óbreyttum að sinni í ljósi óróleika á fjármálamörkuðum upp á síðkastið og muni ekki hugsa sér til hreyfings fyrr en ástandið hafi verið metið.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira