Rauður dagur í Bandaríkjunum 27. ágúst 2007 20:13 Hús til sölu í Bandaríkjunum. Endursala á fasteignum hefur ekki verið með dræmara móti í Bandaríkjunum í fimm ár. Mynd/AFP
Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð við lokun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag eftir að gögn sýndu að endursala á fasteignum dróst saman í síðasta mánuði. Salan hefur minnkað jafnt og þétt síðan á vordögum þegar samdráttar á fasteignalánamarkaði vestra varð fyrst vart og hefur salan ekki verið með dræmara móti í fimm ár. Þá hefur fasteignaverð sömuleiðis lækkað síðastliðna 12 mánuði. Að sögn fréttaveitunnar Bloomberg hafa ekki verið fleiri fasteignir á söluskrá í Bandaríkjunum í sextán ár. Samdráttarins gætir hins vegar ekki þvert um landið því salan jókst í NA-hluta Bandaríkjanna á meðan lítil hreyfing var á fasteignum í suðurhluta landsins. Hlutabréfamarkaðurinn var á niðurleið strax við opnun markaða vestanhafs í dag og endaði á rauðu. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 0,6 prósent, Dow Jones-vísitalan um 0,42 prósent og S&P-vísitalan um 0,85 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira