Árásir í Nígeríu hækka olíuverð 9. maí 2007 14:06 Olíuvinnslustöð.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag og fór í tæpa 66 dali á tunnu. Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og væntingar um meiri eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum á yfirstandandi ársfjórðungi en fyrri spár hljóðuðu upp á eiga helstan þátt í hækkununum. Skæruliðarnir sprengdu upp þrjár olíuleiðslur frá ítalska olíufyrirtækinu Eni í Nígeríu í gær og varð það til þess að olíuframleiðsla fyrirtækisins dróst saman um 150.000 tunnur á dag. Árásir skæruliða hafa komið hart niður á heildarolíuframleiðslu í landinu sem hefur dregist saman um 28 prósent. Sveiflur á olíuframleiðslu í Nígeríu hafa talsvert áhrif á heimsmarkaðsverðið en Nígería er áttunda umfangsmesta olíuframleiðsluríki í heimi.Verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 39 sent og fór í 65,93 dali á tunnu. Í gær hækkaði verðið um 1,10 dali á tunnu og var þar endir bundinn á lækkanaferli síðustu sex viðskiptadaga á undan.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira