Viðskipti erlent

Fyrsta tap Motorola í fjögur ár

Farsímar frá Motorola.
Farsímar frá Motorola.

Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola, annað stærsta farsímafyrirtæki í heimi, skilaði tapi upp á 181 milljón bandaríkjadala, 11,8 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fyrirtækið hefur ekki skilað taprekstri í fjögur ár en hann er að mestu tilkominn vegna verðlækkana og sölu á ódýrum farsímum.

Til samanburðar skilaði fyrirtækið hagnaði upp á 686 milljónir dala, 44,7 milljarða íslenskra króna, á sama tíma í fyrra.

Þá nemur tapið 8 sentum á hvern hlut í Motorola samanborið við 27 senta hagnað á hlut í fyrra.

Tekjur farsímafyrirtækisins námu 5,4 milljörðum dala, 351,8 milljörðum króna, sem er 15 prósenta samdráttur frá sama tíma í fyrra.

Sala fyrirtækisins nam 9,43 milljörðum dala, 614 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 9,61 milljón dali, 626 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir samdrætti upp á 1,8 prósent á milli ára.

Bandaríska fréttaveitan Bloomberg bendir á að Motorola hafi tapað markaðshlutdeild til helsta keppinautarins, finnska farsímaframleiðandans Nokia. Þá mun fyrirtækið hafa einbeitt sér um of að sölu á ódýrum farsímum á nýmörkuðum, svo sem á Indlandi, í stað þess að fylgja eftir vinsældum Razr-farsímans með framleiðslu farsíma í svipuðum verðflokki, að sögn Bloomberg sem gerir ráð fyrir allt að 13 prósenta samdrætti hjá Motorola á yfirstandandi fjórðungi. Gangi það eftir verður afkoma fyrirtækisins undir væntingum á fjórðungnum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×