Slæm staða á bandaríska íbúðalánamarkaðnum 14. mars 2007 09:34
Vanskil á fasteignalánamarkaði og eignaupptaka vegna ógreiddra lána hafa ekki veri með verra móti í Bandaríkjunum í 37 ár, samkvæmt upplýsingum frá samtökum banka á íbúðalánamarkaði þar í landi. Samtökin segja ástandi á síðasta ársfjórðungi 2006 hafa verið sérstaklega slæmt og reikna með að fasteignamarkaðurinn sé að kólna hratt. Staðan á einungis við lánveitendur sem veita þeim íbúðalán sem hafa ýmist slæma greiðslusögu eða eiga í fjárhagserfiðleikum. Fjármálastofnanir hafa margar hverjar verið gagnrýndar fyrir lánveitingar sem þessar enda er gert ráð fyrir að einhver þeirra verði gjaldþrota vegna mikilla vanskila lántakenda. Þá hafa margir greint frá því, að þeir gætu þurft að afskrifa mikið magn lána. Samkvæmt upplýsingum samtaka bankanna jukust vanskil á íbúðalánamarkaði í Bandaríkjunum um 4,95 prósent á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Til samanburðar jukust vanskilin um 13,3 prósent á íbúðalánamarkaði sem sérhæfir sig í lánveitingum til fólks með slæma greiðslusögu. Niðurstaðan hefur haft áhrif á margar af stærstu fjármálastofnunum Bandaríkjanna sem skráð eru á markað og hefur dregið helstu vísitölur niður. Bæði Nasdaq-vísitalan og Dow Jones lækkuðu um rétt tæp tvö prósent við lokun markaða vestanhafs í gær en þetta er önnur mest lækkun síðasttöldu vísitölunnar á árinu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira