Ábyrgðarlausar upplýsingar um verð veitinga 13. mars 2007 13:30 Þorgils Þorgilsson framkvæmdastjóri Carpe Diem. MYND/Vilhelm Gunnarsson
Þorgils Þorgilsson framkvæmdastjóri veitingastaðarins Carpe Diem er afar ósáttur við fréttaflutning af verðlagi á veitingum staðarins í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Hann segir upplýsingar um verðlag á staðnum í fréttatíma RUV og í Kastljósi hafa verið rangar og ábyrgðarlausar. Þorgils segir að á einu ári hafi einungis tveir réttir hækkað í verði á staðnum. Í umfjöllun RUV var sagt frá veitingastöðum sem ekki höfðu lækkað verð á matseðlum um mánaðamót þegar lækkun virðisaukaskatts á matvælum tók gildi. Einhverjir staðir höfðu jafnvel hækkað verð. Carpe Diem á Rauðarárstíg var nefndur í þessu samhengi. Þorgils segir að verðlækkun á matseðli staðarins hafi verið að meðaltali um níu prósent um síðustu mánaðarmót. Hins vegar voru tveir réttir hækkaðir á matseðli Carpe Diem um áramótin, en ekki um mánaðarmót. Aðrir réttir hækkuðu ekki. Fréttamönnum Kastljóss var gerð grein fyrir því fyrir útsendinguna í gær. Þorgils segir hækkunina á þessum tveimur réttum um áramót vera einu hækkun staðarins í heilt ár, á sama tíma og hráefni og launakostnaður hefur hækkað til muna.
Fréttir Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira