Players hækkaði mest 9. desember 2007 19:18
Fjórtán veitingastaðir hækkuðu verð á matseðlum sínum eftir að lækkun virðisaukaskatts hinn 1. mars sem átti að leiða til þess að ódýrara yrði fyrir landsmenn að snæða á veitingastöðum. Fréttastofu Stöðvar tvö tókst nú í vikunni að fá gögn Neytendastofu um verðkönnun sem gerð var til að kanna hvort lækkun virðisaukaskatts á matvælum hefði skilað sér út á matseðlana - eins og til stóð. Gögnin voru afhent eftir að fréttastofa kærði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Neytendastofa kannaði verð á 74 veitingastöðum þrisvar - í febrúar, síðan í mars, eftir að virðisaukaskattur var lækkaður - og loks í ágúst eftir að Neytendastofu höfðu borist fjölmargar ábendingar um að staðir sem lækkuðu í mars hefðu hækkað aftur fáeinum mánuðum síðar. Stofan birti niðurstöður sínar í ágúst - en hefur ekki viljað upplýsa um nöfn veitingastaðanna sem við höfum nú gert. Í vikunni birtum við lista yfir þá veitingastaði sem höfðu hækkað verð hjá sér frá mars til ágúst. En lítum á hvaða veitingastaðir hækkuðu verð frá því fyrir virðisaukaskattslækkun og fram í ágúst. Einn staður sker sig úr - Players, þar sem verðið hefur hækkað um fjórðung, eða 24,9 prósent. Næstmesta hækkunin varð á stað sem er þó langt fyrir neðan Players - en það er Thorvaldsen sem hækkaði um 11,81%. Í þriðja sæti er síðan Rauðará sem hækkað um tíu prósent, Hereford er í fjórða með 9,49%, þá Tveir fiskar, Red Chili er í sjötta sæti en Café Victor hækkað um rösklega 5,7 prósent. Alls hækkuðu fjórtán veitingastaðir hjá sér verð á þessu tímabili, en hækkun hinna sjö var undir fimm prósentum.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira