Sættir í risaskattamáli Merck & Co 21. febrúar 2007 03:15
Stjórn bandaríska lyfjarisans Merck & Co, eins af stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi, hefur náð samkomulagi við bandarísk skattayfirvöld um greiðslu ógreiddra skatta á árabilinu 1993 til 2001. Greiðslan, með vöxtum og álögðum kostnaði, nemur 2,3 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 155,8 milljörðum íslenskra króna. Þetta er önnur stærsta einstaka skattgreiðsla sögunnar. Greiðslan mun ekki hafa áhrif á afkomutölur lyfjarisans á þessu ári þar sem fyrirtækið gerði ráð fyrir að þurfa að greiða skattana og lagði fjármuni í sérstakan sjóð vegna þessa, að sögn Merck. Dregist hefur að greiða skattana, sem eru til komnir meðal annars vegna samstarfs Merck við fjölda aðila sem horft var til að myndi lækka tekjuskattsálögur fyrirtækisins. Merck hafði reyndar búist við að þurfa að greiða allt að 3,8 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 257,4 milljarða íslenskra króna, bæði í Bandaríkjunum og í Kanada. Ef það hefði verið raunin væri það stærsta einstaka skattgreiðsla sögunnar. Engu að síður er þetta næst-stærsta skattgreiðslan. Metið á breski lyfjaframleiðandinn Glaxo-SmithKline Holding, sem greiddi 3,4 milljarða dala, jafnvirði 230 milljarða íslenskra króna, í eftirágreidda skatta í september í fyrra.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira