Verðbólga í Zimbabve nálægt 2.000 prósentum 16. apríl 2007 18:46 Robert Mugabe, forseti Zimbabve.
Stjórnvöld í Afríkuríkinu Zimbabve hafa ákveðið að fresta birtingu verðbólgutalna um eina viku. Breska ríkisútvarpið segir að þetta athæfi bendi til þess að ríkisstjórn Roberts Mugabe vilji ekki horfast í augu við að verðbólga hafi farið úr böndunum og liggi nú nálægt 2.000 prósentum. Í febrúar mældist 1.700 prósenta verðbólga í Zimbabve, sem fagnar því að 27 ár eru liðin í ár síðan landið fékk sjálfstæði. Upphaflega átti að birta upplýsingarnar í síðustu viku. Þótt verðbólgutölurnar liggi ekki fyrir er því spáð að verð hafi rokið upp á milli mánaða, að mestu vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á hráolíu. Svo slæmt er ástandið að sjálfur Gideon Gono, seðlabankastjóri Afríkuríkisins, hefur sagt að landið þjáist af efnahagslegu alnæmi, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Gert er ráð fyrir að staða efnahagsmála eigi eftir að hríðversna á árinu og reiknað með að verðbólgan fari í 5.000 prósent fyrir lok þessa árs bregðist Robert Mugabe, forseti landsins, ekki við.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira