Hráolíuverðið lækkar á heimsmarkaði 2. maí 2007 15:21
Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór undir 64 dali á tunnu á markaði í New York í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri skýrslu sinni að olíuframleiðsla hefði aukist þar í landi í síðustu viku. Þrátt fyrir þetta minnkuðu eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum á milli vikna. Þetta er 12. vikan í röð samdráttar gætir í eldsneytisbirgðum vestanhafs, að sögn fréttaveitunnar Bloomberg. Olíuvinnslustöðvar juku framleiðslu sína um hálft prósent á milli vikna og jukust hráolíubirgðirnar um 1,17 milljónir tunna við það. Þetta er engu að síður nokkuð undir spám greinenda sem gerðu ráð fyrir aukningu upp á 1,5 milljónir tunna. Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 73 sent á markaði í New York og fór í 63,67 dali á tunnu. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði á sama tíma um 43 sent á markaði í Lundúnum í Bretlandi og fór verðið á svartagullinu í 66,57 dali á tunnu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira