Fleiri demókratar í Bandaríkjunum vilja fá öldungardeildarþingmanninn Hillary Clinton í forsetaframboð fyrir flokkinn á næsta ári en Barack Obama, helsta andstæðing hennar. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem bandaríska tímaritið Time lét gera.
Samkvæmt henni vilja 40% skráðra demókrata fá forsetafrúnna fyrrverandi í framboð en 21% Obama. Obama nýtur þó meiri stuðnings meðal óflokksbundinna.