DaimlerChrysler skoðar sölu á Chrysler 4. apríl 2007 11:00 Dieter Zetsche, forstjóri DaimlerChrysler, og Tom LaSorda, forstjóri Chrysler í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler hefur staðfest að fyrirtækið eigi í viðræðum um sölu á Chrysler-hluta fyrirtækisins í Bandaríkjunum. Daimler keypti Chrysler árið 1998 en það hefur átt við viðvarandi taprekstur að stríða. Chrysler-hluti fyrirtækisins skilaði 1,5 milljarða dala, tæplega 100 milljarða króna, tapi á síðasta ári og hefur verið þrýstingur á DaimlerChrysler að það losi sig við fyrirtækið. Chrysler hefur líkt og aðrir bandarískir bílaframleiðendur gripið til nokkurra hagræðingaaðgerða til að snúa rekstrinum við, meðal annars með uppsögnum á 13.000 starfsmönnum og lokun tveggja verksmiðja. Breska ríkisútvarpið (BBC) hefur eftir Dieter Zetsche, forstjóra DaimlerChrysler, í dag að fyrirtækið eigi í viðræðum við nokkra aðila, sem hafi sýnt áhuga á kaupum á Chrysler. Ekki liggur fyrir hvaða fyrirtæki DaimlerChrysler á í viðræðum við en nokkur hafa komið til greina, svo sem bandaríski bílarisinn General Motors og kanadíska fyrirtækið Magna International.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira