Gjensidige stefnir að skráningu 23. mars 2007 04:00
Gjensidige Forsikring, norska fjármálafyrirtækið sem á tæp tíu prósent í Storebrand, stefnir að skráningu í Kauphöllina í Osló á seinni hluta ársins til þess að vera betur í stakk búið til að taka þátt í umbreytingum á norskum fjármálamarkaði. Félagið var stærsti hluthafinn í Storebrand með 9,99 prósent áður en Kaupþing fór yfir tíu prósenta hlut í vikunni. Gjensidige er eins og nafnið gefur til kynna gagnkvæmt tryggingafélag og er því skilgreint í eigu tryggingataka. Félagið er stærsta tryggingafélag Noregs sem er ekki í líftryggingastarfsemi, með yfir þrjátíu prósenta markaðshlutdeild. Storebrand er aftur á móti eitt stærsta félag Noregs í líftryggingum og lífeyrissparnaði. Sá áhugi sem Gjensidige sýnir Storebrand þarf því ekki að koma á óvart. Á síðasta ári hagnaðist Gjensidige um tæpa 36 milljarða króna, sem meðal annars má þakka drjúgum söluhagnaði af hlutabréfum í DnBNOR. Tryggingastarfsemi reyndist einnig arðbær.-
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira