Airbus á áætlun 24. janúar 2007 04:00
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Stjórnendur evrópsku flugvélasmiðjanna hjá Airbus greindu frá því um síðustu helgi að tekist hefði að komast fyrir vandræði í rafkerfinu í hinum nýju Airbus A380 risaþotum félagsins. Um stórt skref er að ræða en vandræðin hafa orðið til þess að afhending vélanna er tveimur árum á eftir áætlun auk þess sem reikningurinn vegna þessa er gríðarhár. Tore Prang, talsmaður Airbus, segir fyrirtækið á áætlun og munu afhenda Singapore Airlines fyrstu vélarnar í október eins og til stóð. Á meðal annarra kaupenda eru Thai Airways, Virgin og ástralska flugfélagið Qantas. Tafirnar hafa valdið bæði Airbus og EADS, móðurfélagi flugvélasmiðjanna, miklum vandræðum. Gengi EADS fell um 30 prósent þegar greint var frá því að upphafleg dagsetning afhendingar stæðist ekki og hefur það vart jafnað sig síðan auk þess sem tveir háttsettir stjórnendur beggja félaga voru látnir taka pokann sinn vegna málsins. Að frátöldum geysiháum kostnaði við þróun og framleiðslu vélanna hafa tafirnar, sem urðu í rafkerfi þeirra, verið Airbus dýrkeyptar. Þær eru taldar nema allt að 3,3 milljörðum breskra punda, um 454 milljörðum íslenskra króna. Gert er ráð fyrir að þessi tala muni hækka þegar fram í sækir, ekki síst ef stjórnendur flugfélaga sem keyptu risaþotur frá Airbus fara í mál við framleiðandann vegna tafanna. Sáu stjórnendur Airbus sér því ekki annað fært en að senda frá sér neikvæða afkomuviðvörun vegna þessa í liðinni viku. Víst þykir að vandræðin með risaþoturnar urðu til þess að fleyta flugvélaframleiðandanum Boeing, helsta keppinauti Airbus, í toppsætið yfir söluhæsta flugvélaframleiðanda í heimi á síðasta ári. Sölutölur beggja félaga fyrir síðasta ár lágu fyrir í síðustu viku og var ljóst að Boeing hafði selt 1.044 vélar í fyrra á móti 790 vélum Airbus. Var það í fyrsta sinn á öldinni sem Boeing seldi fleiri nýjar vélar en Airbus.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira