Brynhildur ráðin til Saga Capital 28. júní 2007 15:18 Brynhildur Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskiptasviðs hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka.
Brynhildur Ólafsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Stöðvar 2, hefur verið ráðin forstöðumaður Samskiptasviðs hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka. Hún mun hafa yfirumsjón með markaðsmálum bankans, almannatengslum hans og samskiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að Brynhildur hafi undanfarin 19 ár aðallega starfað við fjölmiðla, síðustu árin sem yfirmaður erlendra frétta á fréttastofu Stöðvar 2. „Hún hefur jafnframt gegnt starfi forstöðumanns Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og sinnt stundakennslu í stjórnmálafræði. Brynhildur hefur víðtæka reynslu af alþjóðamálum og alþjóðasamskiptum og hefur meðal annars starfað sem fréttamaður fyrir íslenska, breska og bandaríska fjölmiðla í Mexíkó, á Kúbu og í Bosníu og sem sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Hondúras, Pakistan og Afganistan. Hún er útskrifaður stjórnmálafræðingur frá HÍ og er með mastersgráðu í alþjóðastjórnmálum og alþjóðasamskiptum frá Columbia háskóla í New York í Bandaríkjunum." Saga Capital er alþjóðlegur fjárfestingarbanki sem starfar á afmörkuðum sviðum fjármála og veitir þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, útlána og verðbréfamiðlunar til fyrirtækja og fagfjárfesta. Bankinn tekur jafnframt virkan þátt á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum með fjárfestingum fyrir eigin reikning. Saga Capital Fjárfestingarbanki er hlutafélag, stofnað árið 2006 af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum íslensku viðskiptabankanna og völdum fagfjárfestum. Bankinn tók formlega til starfa í maí á þessu ári og er fyrsti íslenski bankinn í yfir 100 ár sem stofnaður er frá grunni og hlýtur frá fyrsta starfsdegi fullt starfsleyfi sem fjárfestingarbanki. Eigið fé bankans er nú tæplega 11 milljarðar sem þýðir að Saga Capital er af svipaðri stærðargráðu og BYR og Icebank. Saga Capital verður aðili að öllum norrænu OMX kauphöllunum í byrjun júlí og stefnir að skráningu hlutabréfa félagsins á verðbréfamarkaði innan fimm ára.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira