Stjóri McLaren reynir að stilla til friðar 13. júní 2007 14:40 Fernando Alonso AFP
Ron Dennis, stjóri McLaren liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að deilur standi milli ökuþóra liðsins þeirra Fernando Alonso og Lewis Hamilton. Alonso gagnrýndi lið sitt í viðtali við spænska útvarpsstöð á dögunum eftir að Hamilton vann sinn fyrsta sigur í Kanada um síðustu helgi. Dennis vísar þeim ásökunum Alonso á bug - að liðið sé að gera ungstirninu Hamilton hærra undir höfði því hann sé breti í bresku liði. "Það er heilbrigð samkeppni í liðinu og milli þeirra starfsmanna sem annast bílana. Ég neita því hinsvegar alfarið að annar ökumaðurinn sé tekinn fram yfir hinn. Báðir hafa sama búnað, stuðning og sömu tækifæri til að vinna keppnir," sagði Dennis. Alonso sagði í útvarpsviðtali að hann hefði fengið óþægilega tilfinningu um leið og hann gekk í raðir McLaren og hefði haft það á tilfinningunni frá fyrstu mínútu að allt yrði gert til að moka undir hinn unga Hamilton.
Formúla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira