Leikjavísir

Fjórir flottustu leikirnir

Crysis - tölvuleikur
Crysis - tölvuleikur
Nóvember er stærsti leikjamánuður ársins og vanalega koma stærstu og bestu leikirnir út á þessum tíma. Allir keppa þeir um að verða undir jólatrénu í ár. Fréttablaðið settist niður og skoðaði stærstu leikina fyrir allar helstu tölvurnar. Þetta er það sem stendur upp úr á PC, Xbox 360 og Playstation 3.Crysis
Ratchet & Clank Future: Tools of Destruction - tölvuleikur
Nafnið á þessum leik lætur harða fyrstu persónu skotleikja aðdáendur fá kipp í hjartað og tölvurnar þeirra að skjálfa við tilhugsunina. Í leiknum er grafík sem er varla hægt að lýsa og mun líklega sjá tölvubúðum landsins fyrir góðum viðskiptum á næstunni þar sem margir munu eyða ágætis upphæðum til að upplifa leikinn í allri sinni dýrð.Um hvað snýst leikurinn?
Mass Effect - tölvuleikur
Leikurinn gerist árið 2020 á eyju í Suður-Kínahafi, hópur fornleifafræðinga hefur gert stóra uppgötvun sem Norður-Kórea vill komast yfir og Bandaríkjamenn senda inn hersveit sem útbúin er sérstökum búningum sem gefa notanda þeirra ótrúlega krafta. Sem kemur að góðum notum þegar deildin rekst á heilan skara af geimverum á eyjunni og þarf að berjast fyrir lífi sínu.Fyrir hvaða tölvu er leikurinn?
Super Mario Galaxy
Aðeins fyrir PC.Ratchet & Clank Future: Tools of DestructionHopp og skopp leikirnir um Ratchet & Clank hafa notið mikilla vinsælda síðustu árin allt frá því að fyrsti leikurinn kom út fyrir Playstation 2. Núna í byrjun nóvember kemur nýjasti leikurinn í seríunni út, aðeins fyrir Playstation 3, og er hann með gull­fallegri grafík sem minnir helst á pixar-teiknimynd.Um hvað snýst leikurinn?Ratchet og Clank eru að slaka á í fríi þegar ráðist er á plánetuna sem þeir eru á. Það kemur í ljós að hershöfðinginn Tachyon er að leita að Ratchet og til þess að finna hann leggur hann plánetuna í rúst. Þessi atburðarás er byrjunin á skemmtilegu ferðalagi sem varpar nýju ljósi á fortíð Ratchet‘s og sýnir nýjar hliðar á Clank.Fyrir hvaða tölvu er leikurinn?Aðeins fyrir PS3.Mass EffectMass Effect er nýjasti leikur kanadíska fyrirtækisins Bioware sem er frægt fyrir leiki eins og: Baldurs Gate, Knights of the Old Republic og Neverwinter Nights. Allt voru þetta epískir hlutverkaleikir sem gáfu spilaranum ótrúlegt frelsi í spilun og sögu og er Mass Effect engin undantekning.Um hvað snýst leikurinn?Árið er 2183 og mann­kynið hefur breiðst út til stjarnanna. Mikil ógn steðjar frá vélmennunum Geth sem eru staðráðin í að útrýma öllu lífi. Þú spilar sem Sheppard foringi í Spectre-sérsveitinni og þarft að reyna að bjarga allri vetrarbrautinni frá útrýmingu og þú þarft að fara í ferðalag um hana alla í baráttu þinni við að stoppa vélmennin og illvirkjann sem stjórnar þeim. Sagan er löng og hafa ákvarðanir spilarans áhrif á atburðarás leiksins.Fyrir hvaða tölvu er leikurinn?Aðeins á Xbox 360.Super Mario GalaxyHver kannast ekki við píparann hann Mario? Hann sást fyrst í Donkey Kong árið 1981 og hefur síðan þá verið skærasta stjarna Nintendo og birst í nokkrum tugum titla.Um hvað snýst leikurinn?Mario Galaxy er nýjasti leikur Mario og sá fyrsti fyrir Nintendo Wii leikjatölvuna. Eins og nærri allir Mario-leikir fjallar þessi leikur um ferðalag Mario í leit að sinni blessuðu prinsessu sem er ávallt dugleg að láta ræna sér. Í þetta skiptið þarf hann að ferðast um ótal stjörnukerfi til að bjarga henni. Leikurinn notar hreyfiskynjum Wii-fjarstýringarinnar á frumlegan og skemtilegan hátt.Fyrir hvaða tölvu er leikurinn?Aðeins á Nintendo Wii.Aðrir flottir leikir í nóvember:Call of Duty 4 (PC, PS3, 360), Guitar Hero 3 (360, PS3, Wii), The Simpsons (PS3, 360, Wii, PSP) Haze (PS3), Kane & Lynch: Dead Men (PC, 360, PS3), Assasins Creed (PS3, 360).





Fleiri fréttir

Sjá meira


×