Spá mikilli aukningu í sölu farþegaþota 14. júní 2007 09:34 Dreamliner 787 farþegaþota frá Boeing. Smíði þotanna er að ljúka en gert er ráð fyrir því að fyrsta þotan verði afhent á næsta ári. Mynd/AFP
Bandarísku flugvélasmiðjur Boeing spá því að sala á farþegaþotum eigi eftir að margfaldast á næstu 20 árum frá fyrri spá. Þeir gera hins vegar ráð fyrir minni eftirspurn eftir risaþotum, sem eru fyrir fleiri en 400 farþega. Gangi spáin eftir eru það ekki góðar fréttir fyrir Airbus en risaþota flugfélagsins tekur um 555 farþega og er á tveimur hæðum. Boeing hafði gert ráð fyrir að það myndi selja farþegaþotur fyrir 200 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 12.700 milljarða króna, á næstu 20 árum en spáir því nú að vegna aukinnar eftirspurnar muni salan nema heilum 2.800 milljörðum dala. Þetta er tífalt meiri sala en fyrri spá flugvélasmiðjanna hljóðaði upp á. Samhliða þessu endurskoðaði Boeing spá sína um sölu á stærri farþegaþotum. Hafði það á síðasta ári gert ráð fyrir að selja 990 slíkar vélar en telur nú að þær verði 30 fleiri vegna minni eftirspurnar. Þá spá flugvélaframleiðendurnir því að beinum flugleiðum muni fjölga. Það komi farþegum til góða þar sem þeir þurfi ekki að millilenda á ferðum sínum. Þá gera flugvélaframleiðendurnir ráð fyrir því að þriðjungur af sölu á nýjum flugvélum muni verða á nýmörkuðum, svo sem í Asíu. Dreamliner 787 farþegaþota Boeing kemur á markað á næsta ári og gera flugvélaframleiðurnir ráð fyrir góðri sölu á henni. Gangi spáin hins vegar eftir um minni eftirspurn eftir risaþotum eru það miður góðar fréttir fyrir evrópsku flugvélasmiðina hjá Airbus. Risaþota fyrirtækisins, A380, er tveimur árum á eftir áætlun og hefur valdið EADS, móðurfélagi fyrirtækisins, talsverðum vandræðum. Gert er ráð fyrir að fyrsta vélin verði afhent í vetur.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira