Viðskipti innlent

Formenn í augum flokkssystkina

Skarpi sjónaukinn Steingrímur J.

Steingrímur J. Sigfússon er fyrst og fremst mikill baráttujaxl, maður úthalds, snerpu og einbeitingar. Það er sameiginlegt mat þeirra Svandísar Svavarsdóttur og Hugins Freys Þorsteinssonar, tveggja af kosningastjórum Vinstri grænna.

„Það er ekki heiglum hent að yfirfæra slíka eiginleika yfir á hlut eða vöru. Upp í hugann kæmi fyrst skarpur sjónauki. Með sterkum, skörpum sjónauka sést lengra og skýrar. Sjónaukinn Steingrímur er hvorki nýr né tölvustýrður heldur traustur, sígildur og varanlegur. Með honum má skoða náttúru, samfélag, heiminn allan og jafnvel horfa gegnum holt og hæðir. Hnífskarpur fókus og leiftursýn sem greina fljótt og vel það sem máli skiptir gera það að sjónauki kemur upp í hugann þegar þessi spurning er borin upp nú í aðdraganda kosninga.“

Bókin Ingibjörg Sólrún

Sigrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Samfylkingunni, líkir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur við bók. „Í bókinni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er gnægð af úthugsuðum lausnum og ráðum varðandi hin ýmsu vandamál samfélagsins sem við blasa í dag, jafnt á sviði efnahagsmála sem velferðarmála. Þar er byggt á langri reynslu en fyrst og fremst horft til framtíðar.

Bókin er vel skipulögð og auðvelt að fletta upp í henni og finna nýjar hugmyndir og nálganir gagnvart málefnum líðandi stundar. Í bókinni er tekist á við samtímann af skynsemi og með opnum hug með jafnrétti og kvenfrelsi að leiðarljósi. Þetta er skemmtileg bók í flottu bandi. Hún fer vel í hillu, þó hvergi eins vel og í Stjórnarráðshúsinu.“

Kraftmikli smábíllinn Ómar

„Ómar Ragnarsson er eins og kraftmikill smábíll, knúinn áfram af umhverfisvænu eldsneyti. Hann liggur vel á veginum og er með afbrigðum þýður.“ Þannig lýsir Sólborg Alda Pétursdóttir, sem situr í kosningastjórn Íslandshreyfingarinnar, formanni flokksins. „Bíllinn Ómar hefur sérstakan útbúnað til að komast klakklaust yfir allar torfærur sem á vegi hans verða. Snjór og hálka eru engin fyrirstaða þó svo að nagladekk fari aldrei undir bílinn.

Hægt er að setja bílinn í fluggír ef svo ber undir. Farþegarnir geta því notið þess að virða fyrir sér landið úr lofti sem og láði. Sérstök hljómflutningstæki prýða bílinn, sem bæði geta sent frá sér ljóð og lag. Í bílnum er tölva sem hefur svar við öllu. Hvert ferð bílsins er heitið er aldrei að vita því hann getur tekið óvæntar beygjur. Hann getur jafnvel tekið krappa U-beygju og farið í allt aðra átt en ferðinni var upphaflega heitið, verði eitthvað á vegi hans sem huga þarf nánar að.“

Hlýi og notalegi frakkinn Jón

„Jón Sigurðsson er sú vara á pólitíska markaðnum sem er bæði sjaldgæf og vönduð en þrátt fyrir það möguleg almenningseign.“ Þannig lýsir Óskar Bergsson, kosningastjóri Framsóknar í Reykjavík, formanni síns flokks.

„Ég sem sölumaður vörunnar hef sannfæringu fyrir því að ég er að bjóða upp á vandaða vöru sem enginn verður svikinn af. Jón er vörumerki sem hefur verið lengi í framleiðslu án þess að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á henni. Kasmír ullarfrakki er það sem kemur upp í hugann. Hlýr og notalegur og stenst vel tímans tönn. Í því sambandi er rétt að minna fólk á að varast ódýrar eftirlíkingar.“

Trausti jeppinn Guðjón Arnar

Guðjón Arnar Kristjánsson er traustasti stjórnmálaforingi sem völ er á, að mati Brynjars Sindra Sigurðssonar, kosningastjóra Frjálslynda flokksins. „Heiðarleiki, sanngirni og réttlæti eru mannkostir sem prýða Guðjón Arnar.

Honum er mjög umhugað um velferð fólksins í landinu og er einn ötulasti baráttumaður í málefnum aldraðra og öryrkja á Alþingi. Að líkja manninum við hlut eða vöru er ekki einfalt mál. Traust jeppabifreið fer kannski næst því. Traust jeppabifreið bregst þér ekki, hvernig sem aðstæður kunna að vera. Traust jeppabifreið er þyngdar sinnar virði í gulli eins og Guðjón Arnar Kristjánsson.“

Trausta og örugga fasteignin Geir„Geir væri fasteign, traust og örugg fjárfesting.“ Þannig lýsir Jóhanna Pálsdóttir, starfsmaður Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni, formanni sínum. „Hann væri björt og hlýleg eign á góðum stað þar sem stutt er í alla þjónustu, góða skóla og frjálsa verslun. Fasteignin er byggð árið 1951 á traustum grunni og hefur verið vel við haldið. Innréttingar eru upprunalegar – sígildar – og einstaklega góður andi er í húsinu. Hér er á ferðinni eign fyrir þá sem gera kröfur og vilja gæði í gegn.“




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×