Leikjavísir

PlayStation 3 vélar rokseljast

PlayStation 3 leikjatölvan, sem Sony fyrirtækið setti á markað í Bandaríkjunum og Japan í nóvember, hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka.

Markmið Sony er að hafa selt sex milljónir véla fyrir lok mars á þessu ári. Fyrsta þess mánaðar fer leikjatölvan í sölu í Evrópu og verður hún þá fáanleg hér á Íslandi.

PlayStation 2 er söluhæsta leikjatölva allra tíma en PlayStation 3 er sú útgáfanna þriggja sem hraðast hefur náð tveggja milljóna króna markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×