Franskir flýja skattinn 10. janúar 2007 06:00 Logo The Economist
Auðugir Frakkar virðast hafa lagt land undir fót og flutt búferlum til landa þar sem skattaumhverfið er þeim hagstæðara, ef marka má nýjasta tölublað Economist. Í blaðinu er greint frá einum þeirra, rokkgoðinu Johnny Hallyday, sem flutti til Sviss fyrir nokkrum árum til að sleppa undan klóm franska hátekjuskattsins. Hallyday, sem er á sama stalli og Elvis Presly í hugum Frakka, er 63 ára en í fullu formi og treður reglulega upp auk þess sem hann hefur gefið út um eina til tvær plötur á ári hverju frá upphafi ferils síns árið 1960. Halliday segir hátekjuskattinn þyrni í augum enda reiknist sér til að um 70 prósent tekna sinna renni í franska ríkiskassann. Búferlaflutningar Hallidays og fleiri Frakka í hans stöðu hefur sett góðan vin hans, forsetaframbjóðandann Nicolas Sarkozy, í slæma stöðu. Sarkozy vill afnema hátekjuskattinn en þykir ekki líklegur til að ná fylgi almennings þar eð breytingin myndi koma auðmönnum einum til góða.Tvístígandi bílaframleiðendurForbes blaðahausarBandaríska viðskiptatímaritið Forbes segir bílaframleiðendur vestanhafs leita ýmissa leiða til að minnka útblástur bíla undir merkjum fyrirtækjanna, draga úr eyðslu þeirra og gera þá umhverfisvænni á allan hátt. Tímaritið segir framleiðendurna hins vegar ekki ætla að laga alla þættina þrjá heldur horfi þeir til þess að gera einungis eina breytingu í bili á bílunum og því viti þeir ekki í hvorn fótinn þeir eigi að stíga.Forbes bendir á að fyrirtækin hafi gert ýmsar tilraunir og leitað ýmissa leiða til að bæta ökutæki framtíðarinnar. Þeir viti hins vegar ekki nákvæmlega hvernig umhverfisvænni bíla þeir vilji sjá á markaðnum á næstu árum. Þessi hringlandaháttur framleiðendanna hefur þeim hins vegar orðið ærið kostnaðarsamanum og verði bílafyrirtækin að hætta að horfa til markmiðsins heldur einblína frekar á leiðina sem þeir ætli að fara, að mati Forbes.
Mest lesið Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent