Viðskipti erlent

Dýrir farsímar seljast vel í Danmörku

vertu farsími Demantsskreyttir farsímar frá Nokia hafa selst eins og heitar lummur í Danmörku þótt þeir kosti rúma eina milljón íslenskra króna.
vertu farsími Demantsskreyttir farsímar frá Nokia hafa selst eins og heitar lummur í Danmörku þótt þeir kosti rúma eina milljón íslenskra króna. MYND/AFP

Demantsskreyttir og gullhúðaðir farsímar frá Nokia eru uppseldir í Danmörku.

Danska dagblaðið Politiken hefur eftir Hans Ryser, framkvæmdastjóra dönsku verslanakeðjunnar Ole Mathiesen, sem hefur umboð fyrir símana, að fyrirtækið hafi haft símana í sölu í hálfan mánuð. Hafi þeir rokið út og sé ljóst að Danir þurfi ekki að halda fast um budduna.

En það er fjarri að símarnir séu fyrir hvern sem er. Auk þess sem þeir eru skreyttir demöntum þá er gullskreytingin úr átján karata hvítu gulli. Rúsínan í pylsuendanum er svo verðið en þeir kosta um eina milljón danskra króna eða jafnvirði rúmra 1,2 milljóna íslenskra króna hjá Ole Mathiesen.

Þessir verðmætu farsímar nefnast Vertu og hafa verið framleiddir í Bretlandi undir vörumerki Nokia frá árinu 2001. Símarnir, sem líkjast að mestu hefðbundnum farsímum frá Nokia, eru skreyttir sjö hundruð demöntum og tekur heila sjö daga að framleiða þá. Segja bresku framleiðendurnir þetta svo langt ferli og erfitt að á mörkunum sé að framleiðslan borgi sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×