Viðskipti erlent

Lífeyrissjóðirnir bættir vestra

við undirritun reglugerðarinnar Nýju lögin eiga að tryggja lífeyrisgreiðslur launþega í Bandaríkjunum.
við undirritun reglugerðarinnar Nýju lögin eiga að tryggja lífeyrisgreiðslur launþega í Bandaríkjunum. MYND/AP

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, undirritaði ný lög í Hvíta húsinu í Washington í Bandaríkjunum á fimmtudag í síðustu viku sem eiga að skikka bandarísk fyrirtæki til að tryggja lífeyrisgreiðslur til starfsmanna sinna.

Nokkur fjöldi manna var viðstaddur þegar Bush skrifaði undir lögin enda hefur þeirra verið beðið lengi. Forsetinn sagði að um væri að ræða mestu umbætur á lögum um bandaríska lífeyrissjóði í meira en þrjátíu ár.

Bandaríkjamenn sem vinna baki brotnu alla sína ævi eiga að ganga að lífeyri sínum vísum þegar þeir setjast í helgan stein, sagði Bush og benti á að mörg fyrirtæki stæðu ekki við loforð sín um að leggja fjármagn til hliðar til að tryggja starfsmönnum sínum lífeyri líkt og þeim var lofað.

Gagnrýnendur laganna segja þau gera lítið gagn og muni það veikja lífeyrissjóðakerfið vestra til lengri tíma litið.

Bandaríkjaforseti vísaði allri gagnrýni á bug við undirritun laganna. Sagði hann ábyrgðina vera í höndum atvinnurekenda og ítrekaði að þeir yrðu að efna loforð sín við launþega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×