Verðbólga hefur náð hámarki 13. september 2006 00:01
Verðbólgan náði hámarki í síðasta mánuði að mati Þóru Helgadóttur, sérfræðings KB banka. Verðbólga mældist 8,6 prósent á ársgrundvelli í ágúst. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,61 prósent í september og nemur tólf mánaða verðbólga 7,6 prósentum. KB banki spáði 0,8 prósenta verðbólgu í september og er lækkun tólf mánaða verðbólgu því talsvert meiri en greiningardeild bankans gerði ráð fyrir "Verðbólgan fer líklega aðeins upp aftur og verður milli átta og 8,5 prósent á næsta ársfjórðungi. Á næsta ári lækkar hún síðan nokkuð skarpt," segir Þóra. Björn Rúnar Guðmundsson, sérfræðingur Landsbankans, segir niðurstöðuna hagstæða enda hafi krónan styrkst kröftuglega í kjölfarið. Það sé merki um að markaðurinn telji tíðindin jákvæð. Almennt hefur verið búist við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti um fimmtíu punkta nú á fimmtudag. Björn Rúnar telur ólíklegt að verðbólgutölurnar hafi áhrif á þá ákvörðun. "Þessi verðbólguhjöðnun hlýtur að styrkja Seðlabankann í þeirri trú að hann sé að gera rétt. Ég á ekki von á því að bankinn hætti við að hækka vexti, þótt kannski séu örlítið meiri líkur en áður á að hækkunin verði aðeins um tuttugu og fimm punktar."
Viðskipti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira