Milestone kaupir Sjóvá 2. maí 2006 10:17
Glitnir banki hf hefur selt allan sinn hlut í tryggingarfélaginu Sjóvá í kjölfar tilboðs sem bankanum barst í 33,4 prósenta hlut hans í tryggingarfélaginu. Kaupandi er Milestone ehf., sem er í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu. Milestone ehf. átti fyrir 66,6 prósenta í Sjóvá en er eftir kaupin alfarið í eigu þess. Söluverðið er 9,5 milljarðar sem endurspeglar 28,5 milljarða króna virði alls hlutafjár Sjóvá-Almennra trygginga hf. Með sölunni innleysir bankinn á yfirstandandi ársfjórðungi rúmlega 2,4 milljarða króna í söluhagnað. Kaupverðið er greitt með peningum og fer frágangur viðskiptanna fram þann 19. maí næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallarinnar um söluna. Glitnir og Sjóvá munu áfram starfa náið saman á sviði banka- og tryggingaþjónustu og verður samstarfið eflt m.a. í útibúum víða um land. Þá munu félögin auka samvinnu meðal annars með auknu sameiginlegu vöruframboði. Samhliða viðskiptunum kaupir Glitnir banki hlut Milestone ehf í fjárfestingarfélaginu Mætti hf og eiga Sjóvá og Glitnir Mátt til helminga eftir viðskiptin. Eigendur Máttar stefna að því að fá aðra fjárfesta til liðs við félagið.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira