Kjálki græddur á kornabarn 21. júní 2006 20:00
Kínverskir læknar græddu í morgun kjálka á eins árs gamlan dreng sem var bitinn heiftarlega af asna fyrir hálfum mánuði. Þótt enn sé of snemmt að segja til um batahorfurnar virðist aðgerðin hafa heppnast ágætlega. Li litli Hua, eins árs gamall snáði frá Xian í Shannxi-héraði í Kína, hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu því í byrjun þessa mánaðar þegar hann var í pössun á bóndabýli ömmu sinnar beit asni hann svo illa að kjálkinn rifnaði af. Síðan þá hefur Li ekki getað nærst á neinu nema mjólk. Læknar hafa síðustu daga velt vöngum yfir hvernig helst megi lagfæra andlit drengsins og í gærkvöldi réðust þeir umfangsmikla skurðaðgerð þar sem kjálkabeinið var aftur grætt á hann ásamt skinni og æðum af baki hans. Aðgerðin tók níu klukkustundir og í morgun voru læknarnir að vonum þreyttir, en glaðir. Of snemmt er hins vegar að gera því skóna að Li geti notað kjálkann að fullu á ný. Enn er hætta á að drep myndist í vöðvum og beinum því bæði er flókið og erfitt að viðhalda blóðlflæðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Fleiri fréttir Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Sjá meira