Býst við uppsögnum 10. október 2006 09:19 Louis Gallois, nýráðinn forstjóri Airbus. Mynd/AFP
Louis Gallois, sem tók við forstjórastóli evrópsku flugvélasmiðjanna Airbus af Christian Streiff í gær, segir líkur á umfangsmiklum uppsögnum innan fyrirtækisins. Uppsagnirnar munu verða jafnt í Þýskalandi og í Frakklandi. Ekki er ljóst hvort einhverjar uppsagnir verði í Bretlandi en þar er hluti af A380 risaþotunni frá Airbus framleiddur. Í gær var greint frá því að Streiff hefði látið af störfum sem forstjóri Airbus. Ósætti hafi verið á milli hans og stjórnar EADS, móðurfélags Airbus, en hann hafði farið fram á aukið fé til þróunar risaþotunnar til að flýta fyrir framleiðslu hennar. En afhending risaþotunnar hefur frestast tvívegis vegna tafa í framleiðslu. Fyrirhugað var að afhenda Singapore Airlines fyrstu risaþoturnar nú undir árslok en ekki er útlit fyrir að það verði fyrr en í fyrsta lagi næsta haust og er afhendingin nú tveimur árum á eftir áætlun. Gallois mun auk þess að vera forstjóri Airbus halda í starf sitt sem aðstoðarforstjóri EADS-samstæðunnar, móðurfélags Airbus.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira