Formúla 1

Við höfum engar afsakanir

Mistök Renault-liðsins í dag kunna að hafa reynst dýrkeypt á lokasprettinum í baráttunni um titilinn
Mistök Renault-liðsins í dag kunna að hafa reynst dýrkeypt á lokasprettinum í baráttunni um titilinn NordicPhotos/GettyImages

Pat Symonds, liðsmaður Renault, segir liðið ekki hafa neinar afsakanir fyrir því að hafa tapað Kínakappakstrinum í dag og segir að liðið hefði átt að vinna keppnina.

"Við reynum ekki að afsaka okkur - við áttum að vinna þennan kappakstur. Bíllinn var frábær og sömuleiðis Mitchelin hjólbarðarnir voru frábær og það er ömurlegt að hafa ekki náð að vinna í ljósi þess að Alonso var að keyra eins og höfðingi í dag," sagði Symonds vonsvikinn, en hjólbarðaklúður í viðgerðarhlénu gerði það að verkum að Alonso varð að láta sér lynda annað sætið í dag og því er Michael Schumacher kominn í efsta sætið í stigakeppni ökuþóra með 116 stig líkt og Alonso - en hefur unnið fleiri keppnir og er því í efsta sætinu.

Giancarlo Fisichella er í þriðja sæti í stigakeppni ökuþóra með 63 stig, Felipe Massa í fjórða með 62 stig, Kimi Raikkönen hefur 57 stig í fimmta sætinu og Jenson Button í því sjötta með 45 stig. Aðrir ökumenn koma þar langt á eftir.

Spennan á toppi stigakeppni liða er jafn spennandi, en þar hefur Renault 179 stig á toppnum, Ferrari hefur 178 stig, Mclaren Mercedes hefur 101 stig og Honda er í fjórða sætinu meða 73 stig. BMW er svo í fimmta sæti með 35 stig og Toyota hefur 30 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×